Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 27. ágúst 2021 09:23
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo kvaddi liðsfélagana og yfirgaf æfingasvæðið
Mynd: Getty Images
Aðallið Juventus æfir nú á æfingasvæði félagsins en án Cristiano Ronaldo. Hann mætti á svæðið í morgun til að kveðja liðsfélaga sína.

Fabrizio Romano segir að Ronaldo hafi verið í 40 mínútur á æfingasvæðinu en svo keyrt burt í þann mund sem æfingin var að hefjast. Í gær var greint frá því að hann hefði tæmt skáp sinn í klefanum.

Manchester City er að vinna að kaupum á portúgölsku stórstjörnunni. La Gazzetta dello Sport segir að mögulega muni City ganga frá kaupunum á næsta sólarhring.

Manchester City hyggst gera tveggja ára samning við Ronaldo og ýmsir fjölmiðlar fullyrða að munnlegt samkomulag sé í höfn.

Sjá einnig:
Juventus gríðarlega ósátt við framkomu Ronaldo
Ronaldo biður um að vera seldur
Rýnt í Ronaldo og Man City - Skrítið en spennandi


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner