Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. desember 2019 18:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Dijk: Vonandi getum við haldið áfram og notið ferðarinnar
Mynd: Getty Images
„Wolves er frábært lið og það verður að hrósa þeim því þetta var alltaf að fara að vera erfitt," sagði Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, eftir 1-0 sigur á Úlfunum.

„Við viljum halda áfram að gera það sem við erum að gera og við sjáum svo hvar við endum. Okkur finnst við geta bætt okkur, en við getum ekki kvartað."

Liverpool endar árið 2019 á sigri. Árið hefur verið viðburðarríkt og hafa þrír titlar unnist. Liverpool endar þá árið á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með þægilegt forskot.

„Árið 2019 var lofandi og vonandi getum við haldið þessu áfram, og í leiðinni notið ferðarinnar."

Um mögulega hendi á hann sjálfan í aðdraganda marks Liverpool, þá sagði hann: „Ég verð að sjá það aftur. Ég man ekki eftir því. Leikurinn er búinn. Hvað getum við gert? Markið stóð."
Athugasemdir
banner