Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 30. apríl 2021 22:41
Elvar Geir Magnússon
Heimir ósammála Jóa Kalla: Klárt rautt spjald
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn náðu lítið að skapa sér gegn ÍA í fyrri hálfleik en voru mun betra liðið eftir hlé þegar þeir unnu 2-0 sigur í opnunarleik Pepsi Max-deildarinnar.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 ÍA

„Í fyrri hálfleik var hugarfarið alveg til staðar en sendingar og ákvarðanatökur ekki nægilega góðar. Fyrirgjafir og hlaup voru ekki að fara saman. Það lagaðist í seinni hálfleik, þá vorum við góðir og unnum sanngjarnan sigur," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, eftir leikinn.

Það var harka í leiknum, eitthvað sem kom Heimi ekki á óvart.

„Það eru nánast allir að spá Skaganum falli og þetta var erfiður leikur og vel tekist á," sagði Heimir.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var á því að Ísak Snær Þorvaldsson hefði ekki átt að fá brottvísun í leiknum en Heimir var ósammála því. „Þetta var klárt rautt spjald," sagði Heimir.
Athugasemdir
banner
banner