Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 31. maí 2021 14:59
Elvar Geir Magnússon
Björn Bergmann fór í aðgerð á baki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson fór í aðgerð á baki en umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon birtir mynd af honum á Twitter í dag.

Björn gekk í raðir Molde frá Lilleström fyrir tímabilið en hefur aðeins getað tekið þátt í einum leik af sex vegna meiðsla.

Ljóst er að hann spilar ekki með Molde á næstunni því nú tekur við endurhæfing eftir aðgerðina.

Björn Bergmann, sem er þrítugur, hefur leikið sautján A-landsleiki fyrir Ísland en hann hefur ekki leikið fyrir landsliðið síðan 2018.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner