Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 31. desember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mattia Perin á leið aftur til Genoa
Mattia Perin
Mattia Perin
Mynd: Getty Images
Ítalski markvörðurinn Mattia Perin er á leið aftur til Genoa á láni frá Juventus.

Juventus keypti Perin frá Genoa sumarið 2018 á 14,2 milljónir evra en hann hefur aðeins spilað 9 leiki fyrir ítalska stórveldið.

Perin er nú á leið aftur heim til Genoa en hann verður lánaður út tímabilið og á félagið möguleika á að kaupa hann næsta sumar.

Hann gekkst undir læknisskoðun í gær og verður kynntur á næstu dögum.

Perin er 27 ára gamall en átti erfitt með að berjast við Wojciech Szczesny og Gianluigi Buffon um sæti í liði Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner