Football365 setti saman lista yfir tíu bestu markverði tímabilsins í enska boltanum. Í næstu viku verður opinberaður listi yfir bestu bakverðina.
10. Martin Dubravka (Newcastle United) - Slóvakinn kom frá Sparta Prag í janúar og hefur strax látið til sín taka. Þrívegis haldið hreinu í fyrstu sex leikjunum.
9. Hugo Lloris (Tottenham) - Ekki átt eins gott tímabil og fyrir ári en er þó enn einn besti markvörður deildarinnar.
7. Jonas Lössl (Huddersfield Town) - Daninn kom frá Mainz. Markvörður sem er ekki bara góður í að verja heldur er einnig vel spilandi.
5. Lukasz Fabianski (Swansea) - Það hefur verið nóg að gera hjá Fabianski en hann hefur sýnt mikinn stöðugleika.
4. Jordan Pickford (Everton) - Hefur spilað með slakar varnir fyrir framan sig en hefur bætt sig mikið og er enn að taka framförum.
3. Nick Pope (Burnley) - Fékk tækifærið þegar Tom Heaton meiddist og hefur ekki litið til baka síðan. Heaton er að snúa aftur en Pope gefur ekki ástæðu til að vera settur á bekkinn.
2. David De Gea (Manchester United) - Heldur áfram að taka magnaðar vörslur og er besti markvörður plánetunnar í dag.
Athugasemdir