Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.07.2023, 13:01

Gunnar Heiðar tekur við Njarðvík (Staðfest)

Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur náð samkomulagi við Gunnar Heiðar Þorvaldsson um hann taki við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla út leiktíðina 2023. Það var greint frá því fyrst hér á Fótbolta.net í gær að Gunnar Heiðar væri í viðræðum við Njarðvík.

FRÉTTIR19.07.2023, 10:00

Ampadu til Leeds (Staðfest)

Leeds United hefur fengið velska landsliðsmanninn Ethan Ampadu frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Þessi 22 ára varnarmaður gerir fjögurra ára samning. Sagt er að Leeds borgi 7 milljónir punda fyrir leikmanninn og sú upphæð getur hækkað eftir ákvæðum.

FRÉTTIR19.07.2023, 09:46

Zeki Amdouni nýr liðsfélagi Jóa Berg hjá Burnley (Staðfest)

Burnley hefur fengið svissneska framherjann Zeki Amdouni frá Basel en kaupverð er ekki uppgefið. Þessi 22 ára leikmaður skoraði sjö mörk í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Burnley sem endurheimti á síðasta tímabili sæti í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Berg Guðmundsson er einn af leikmönnum liðsins.

FRÉTTIR19.07.2023, 09:36

Oriol Romeu til Barcelona (Staðfest)

Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið til sín miðjumanninn Oriol Romeu frá Girona en þessi 31 árs leikmaður gerir þriggja ára samning. Romeu kom á sínum tíma upp úr hinni frægu La Masia akademíu Barcelona en spilaði aðeins tvo leiki fyrir aðalliðið 2010-11, undir stjórn Pep Guardiola.

FRÉTTIR19.07.2023, 09:28

Jordi Alba til Messi og félaga í Inter Miami (Staðfest)

Spænski varnarmaðurinn Jordi Alba hefur skrifað undir samning við Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni og er því orðinn liðsfélagi Lionel Messi og Sergio Busquets á ný en þeir gerðu góða hluti saman með Barcelona. Alba er 34 ára bakvörður og hefur Jorge Mas, forseti Inter Miami, staðfest að hann hafi skrifað undir samning og ætti að vera kominn með leikheimild þegar leikið verður gegn Atlanta á þriðjudaginn.

FRÉTTIR18.07.2023, 17:09

Kim til Bayern (Staðfest) - Draumur hvers leikmanns

Kim Min-Jae er genginn í raðir Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og skrifar undir fimm ára samning við félagið. Suður-kóreski varnarmaðurinn var mikið orðaður við Manchester United í sumar en ákvað að ganga í raðir Bayern. <i>„Bayern er draumur hvers fótboltamanns. Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni í Munchen. Þetta er nýtt upphaf fyrir mig. Ég mun halda áfram að þróa minn leik hér. Það var ljóst frá fyrsta samtali hversu áhugasamt félagið var að fá mig. Mitt fyrsta markmið er að spila mikið af leikjum. Auk þess, þá vil ég vinna eins marga titla og hægt er,"</I> segir Kim.

FRÉTTIR18.07.2023, 16:58

Elías Rafn lánaður til CD Mafra (Staðfest)

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson spilar með portúgalska liðinu CD Mafra á komandi tímabili. Midtjylland hefur staðfest þetta en danska félagið lánar hann og segir á heimasíðu sinni að með þessu haldi þróun hans áfram og hann verði reynslumeiri þegar hann snýr aftur að ári liðnu.

FRÉTTIR18.07.2023, 16:13

Rashford hjá United til 2028 (Staðfest)

Marcus Rashford, framherji Manchester United, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Rashford er 25 ára gamall og hefur verið hjá félaginu frá átta ára aldri, hann lék sinn fyrsta leik árið 2015 og hefur til þessa skorað 123 mörk í 359 keppnisleikjum.

FRÉTTIR18.07.2023, 10:10

Tumi aftur í HK (Staðfest)

Hinn átján ára gamli Tumi Þorvarsson er kominn aftur til HK eftir lánsdvöl hjá Haukum í 2. deildinni. Tumi spilaði tvo leiki með HK í Bestu deildinni í byrjun tímabils áður en hann var lánaður en hann var kallaður Köngulóarmaðurinn eftir að hafa spilað stórt hlutverk í fyrstu umferð.

FRÉTTIR18.07.2023, 09:30

Begovic kominn til QPR (Staðfest)

<p>QPR hefur staðfest félagaskipti markvarðarins Asmir Begovic til félagsins en hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa farið frá Everton um síðustu mánaðamót.</p>

FRÉTTIR18.07.2023, 09:17

Jordan Smylie í Hauka (Staðfest)

Ástralski framherjinn Jordan Smylie er genginn í raðir 2. deildarliðs Hauka. Félagaskiptaglugginn opnaði í dag og hann er kominn með leikheimild. Smylie yfirgefur Keflavík en hann gekk í raðir félagsins fyrir yfirstandandi tímabil og hefur leikið átta leiki í Bestu deildinni án þess að skora mark. Þessi 23 ára leikmaður stóð engan veginn undir væntingum hjá Keflavík og fróðlegt að sjá hvernig hann fótar sig með Haukum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.