Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. nóvember 2019 09:39
Magnús Már Einarsson
Mourinho líklegastur hjá veðbönkum í starfið hjá Bayern
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Þýsku meistararnir í Bayern Munchen ráku í gær þjálfarann Niko Kovac úr starfi. Króatinn fékk sparkið eftir 5-1 tap gegn Eintracht Frankfurt á laugardaginn.

Bayern leitar nú að eftirmanni Kovac og byrjað er að orða nokkur nöfn við liðið.

Samkvæmt veðbanka Sky þykir Jose Mourinho vera langlíklegastur til að taka við. Þar á eftir kemur Massimiliano Allegri þjálfari Juventus.

Næsti þjálfari Bayern
Jose Mourinho 1,75 í stuðul
Massimiliano Allegri 4
Erik ten Hag 6
Hansi Flick 6
Ralf Rangnick 6
Mauricio Pochettino 9
Julian Nagelsmann 10
Arsene Wenger 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner