Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. maí 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Griezmann sagður til sölu
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: Getty Images
Daily Mirror segir að Barcelona sé tilbúið að selja níu leikmenn en fjárhagsstaða félagsins er slæm vegna kórónaveirufaraldursins.

Nelson Semedo og Philippe Coutinho eru á sölulista og þá er félagið sagt tilbúið að hlusta á tilboð í Antoine Griezmann.

Það er erfitt að sjá Börsunga selja Griezmann á þessum tímapunkti en sagan segir að félagið vilji fá inn peninga sem fyrst til að eiga möguleika á að kaupa Neymar.

Arturo Vidal, Luis Suarez og Ousmane Dembele eru einnig sagðir fáanlegir en félög í ensku úrvalsdeildinni horfa til þeirra.

Það hefur gustað hressilega bak við tjöldin hjá Barcelona síðustu mánuði og staða félagsins óljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner