Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 06. nóvember 2022 13:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Gabriel sá til þess að London er rauð í dag
Mynd: EPA

Chelsea 0 - 1 Arsenal
0-1 Gabriel Magalhaes ('63 )


Arsenal var með öll völd á vellinum þegar liðið heimsótti Chelsea á Stamford Bridge í grannaslag í London.

Chelsea beitti skyndisóknum og átti einu tilraunina á markið í fyrri hálfleik en fín sókn endaði með því að fyrrum Arsenal maðurinn, Pierre Emerick Aubameyang átti misheppnað skot beint á Aaron Ramsdale í marki Arsenal.

Arsenal menn voru áfram sterkir í upphafi síðari hálfleiks og það skilaði sér á 63 mínútu, hornspyrna sem Bukayo Saka tók fór í gegnum allan pakkann og boltinn virtist jafnvel vera rúlla í netið, varnarmaðurinn Gabriel tók enga áhættu og ýtti boltanum í netið.

Aðeins tveimur mínútum síðar gerði Graham Potter tvöfalda skiptingu og tók meðal annars Aubameyang af velli, ekki tókst honum að stríða gömlu félögunum.

Mörkin urðu ekki fleiri svo 1-0 sigur Arsenal staðreynd og liðið endurheimtir toppsætið af Manchester City.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner