Fabrizio Romano greinir frá því að Chelsea er komið í viðræður við Borussia Mönchengladbach um möguleg kaup á framherjanum öfluga Marcus Thuram.
Thuram verður samningslaus næsta sumar og er talið líklegt að Gladbach kjósi að halda honum út tímabilið ef það berst ekkert ásættanlegt kauptilboð.
Thuram er 25 ára gamall og fékk silfurmedalíu með franska landsliðinu á HM í Katar. Hann hefur gert 41 mark í 119 leikjum með Gladbach og gefið 26 stoðsendingar.
Chelsea getur þó búist við harðri samkeppni um Thuram þar sem hann er eftirsóttur af stórliðum víða um Evrópu. Manchester United er þó ekki talið hafa áhuga lengur.
Athugasemdir