Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. september 2021 18:33
Victor Pálsson
Dyrnar alltaf opnar fyrir Wilshere á Emirates
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal, er velkominn aftur á æfingasvæði félagsins þurfi hann á þvi að halda næstu vikur.

Wilshere er án félags þessa stundina en hann var í áratug hjá Arsenal og spilaði næstum 200 keppnisleiki.

Meiðsli hafa sett stórt strik í reikning miðjumannsins sem var síðast á mála hjá Bournemouth á síðustu leiktíð.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, spilaði með Wilshere og segir að dyrnar séu alltaf opnar fyrir hann á Emirates.

„Hann er einver sem ég þekki, ég var með honum í búningsklefanum," sagði Arteta á blaðamannafundi.

„Hann er einhver sem er elskaður af öllum í félaginu og dyrnar verða alltaf opnar fyrir hann."


Athugasemdir
banner
banner
banner