Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. mars 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Axel í liði umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Axel Óskar Andrésson, varnarmaður Riga, er í liði umferðarinnar í fyrstu umferðinni í úrvalsdeildinni í Lettlandi.

Axel skoraði glæsilegt mark með þrumuskoti í slána og inn í 3-0 sigri á Ventspils um helgina.

Um var að ræða fyrsta mark tímabilsins í lettnesku úrvalsdeildinni.

„Það er gaman að vera fyrsti Íslendingurinn frá upphafi til að spila í þessari deild og að ná að skora," sagði Axel í viðtali eftir leik.

Hér að neðan má sjá viðtalið við Axel.

Athugasemdir
banner
banner