Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. nóvember 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mancini: Munum komast á HM og mögulega vinna keppnina
Mynd: EPA
Ítalía þarf að fara í umspil í mars á næsta ári um sæti á HM í Katar. Ítalía endaði í 2. sæti síns riðils í undankeppninni.

Ítalía er ríkjandi Evrópumeistari en henti frá sér tækifærinu á öruggu sæti á HM í síðustu tveimur leikjum sínum í riðlinum. Fyrir HM í Rússlandi fór Ítalía í umspil en féll úr leik þar gegn Svíþjóð.

Roberto Mancini, þjálfari Ítala, hefur áfram fulla trú á sínu liði.

„Við munum tryggja okkur HM-sætið í mars, svo munum við kannski fara alla leið í keppninni og vinna hana," sagði Mancini.

Sjá einnig:
Mun ítalska martröðin endurtaka sig?
orginho og Insigne brugðust og Mancini týndi töfrasprotanum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner