Ögmundur Kristinsson hélt hreinu er AEL Larissa gerði markalaust jafntefli við AEK frá Aþenu í gríska boltanum í dag.
Leikurinn var hnífjafn og áttu gestirnir sjö skot að marki Ögmundar en aðeins eitt þeirra fór á rammann. AEL er fjórum stigum frá fallsæti á meðan AEK er í Meistaradeildarbaráttu.
Guðlaugur Victor Pálsson fyrirliði Zurich sat allan tímann á bekknum er liðsfélagar hans gerðu markalaust jafntefli við Lugano í svissneska boltanum. Zurich er í Evrópudeildarsæti sem stendur, fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.
Hannes Þór Halldórsson var ekki í hóp er Qarabag lagði Keshla að velli í bikarnum í Aserbaídsjan og þá heldur slæmt gengi Kerala Blasters áfram í indverska boltanum, en Hermann Hreiðarsson er aðstoðarþjálfari David James þar.
Kerala er aðeins búið að vinna einn leik í deildinni, fyrsta leik tímabilsins sem hófst í lok september.
AEL Larissa 0 - 0 AEK Aþena
Zurich 0 - 0 Lugano
Qarabag 1 - 0 Keshla
Mumbai City 6 - 1 Kerala Blasters
Athugasemdir