Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 17. mars 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Chelsea eða Atlético í 8-liða úrslit?
Olivier Giroud skoraði magnað mark í fyrri leiknum
Olivier Giroud skoraði magnað mark í fyrri leiknum
Mynd: Getty Images
16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu klárast í kvöld en Evrópumeistarar Bayern München mæta Lazio á meðan Chelsea fær Atlético Madríd í heimsókn.

Chelsea vann Atlético 1-0 í fyrri leiknum þökk sé glæsimarki frá Olivier Giroud á meðan Bayern vann Lazio 4-1 á útivelli og er svo gott sem komið áfram í næstu umferð.

Atlético er þó lið sem ekki má afskrifa. Liðið gerði frábærlega gegn Liverpool í 16-liða úrslitum á síðustu leiktíð og verður áhugavert að sjá hvað Diego Siemeon dregur fram úr erminni gegn þeim bláklæddu.

Leikir dagsins:
20:00 Chelsea - Atletico Madrid
20:00 Bayern - Lazio
Athugasemdir
banner
banner