Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 17. maí 2020 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo snýr aftur á æfingasvæðið á þriðjudaginn
Cristiano Ronaldo er búinn að vera í 14 daga sóttkví
Cristiano Ronaldo er búinn að vera í 14 daga sóttkví
Mynd: Getty Images
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo mun snúa aftur til æfinga hjá Juventus á þriðjudaginn.

Ronaldo yfirgaf Ítalíu er kórónaveiran var byrjuð að breiða úr sér í landinu en hann ákvað að fara til Portúgal og eyða tíma með fjölskyldu sinni.

Leikmaðurinn hafði það náðugt í Portúgal með fjölskyldu sinni á meðan óvissan var sem mest en ferðaðist aftur til Ítalíu þann 5. maí og fór í 14 daga sóttkví.

Ítölsku liðin mega æfa í hópum frá og með morgundeginum en Ronaldo mætir þó ekki aftur til æfinga fyrr en á þriðjudag en stefnan er að deildin fari aftur af stað um miðjan júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner