Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 17. nóvember 2021 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Bayern með veiruna
Josip Stanisic í leik með Bayern
Josip Stanisic í leik með Bayern
Mynd: EPA
Þýski varnarmaðurinn Josip Stanisic er með kórónaveiruna en þýska félagið Bayern München greinir frá þessu í dag.

Stanisic er 21 árs gamall miðvörður en getur einnig leyst stöðu hægri bakvarðar.

Þessi öflugi leikmaður hefur verið á mála hjá Bayern síðustu fjögur árin en fékk tækifærið með aðalliðinu á síðustu leiktíð.

Hann hefur fengið tólf leiki á þessu tímabili en missir af næstu leikjum liðsins þar sem hann greindist með kórónaveiruna og þarf nú að einangra sig frá hópnum.

Stanisic er bólusettur og líður ágætlega en hann mun væntanlega missa af næstu tveimur leikjum, gegn Augsburg í deildinni og svo Dynamo Kiev í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner