Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 18. júlí 2021 16:01
Brynjar Ingi Erluson
Styttist í að Sancho verði kynntur hjá Man Utd
Jadon Sancho
Jadon Sancho
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Jadon Sancho verður kynntur sem nýr leikmaður Manchester United á næstu dögum en Ole Gunnar Solskjær, stjóri félagsins, staðfesti þetta í dag.

Man Utd náði samkomulagi við Dortmund í byrjun júlí en félagið borgar allt að 73 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Sautján dagar eru síðan samkomulagið var staðfest en leikmaðurinn hefur þó ekki enn verið kynntur.

Solskjær sagði að aðeins ætti eftir að ganga frá einhverjum smáatriðum áður en hann verður kynntur.

„Það á bara eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum og svo kemur tilkynning," sagði Solskjær eftir 2-1 sigurinn á Derby í fyrsta leik undirbúningstímabilsins en hann vildi annars ekki mikið tjá sig um Sancho fyrr en hann er opinberlega orðinn leikmaður félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner