Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 19. október 2022 09:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðsmiðverðir mætast í Meistaradeildinni
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Riðlakeppnin í Meistaradeild kvenna hefst í dag og eru fjórir leikir á dagskrá þennan miðvikudaginn.

Það er svo sannarlega áhugaverður leikur í dag þegar Bayern München tekur á móti sænsku meisturunum í Rosengård. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir leika með Bayern og í liði Rosengård er Guðrún Arnardóttir.

Sá leikur hefst klukkan 16:45, rétt eins og leikur Zürich og Juventus. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með ítölsku meisturunum í Juventus.

Hægt verður að fylgjast með leikjunum í beinni útsendingu á Youtube en hér fyrir neðan má sjá leiki dagsins og leiktíma.

miðvikudagur 19. október
16:45 Zürich - Juventus
16:45 Bayern - Rosengård
19:00 Lyon - Arsenal
19:00 Barcelona - Benfica


Athugasemdir
banner
banner
banner