Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. júní 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino vill 15 milljónir evra frá PSG
Mauricio Pochettino vill að félagið standi við sitt
Mauricio Pochettino vill að félagið standi við sitt
Mynd: EPA
Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino ætlar ekki að sætta sig við neitt minna en 15 milljónir evra frá franska félaginu Paris Saint-Germain. ef það ætlar að losa sig við hann.

Franska félagið vinnur nú hörðum höndum að því að ná samkomulagi um starfslok við Pochettino en það má gera ráð fyrir því að félagið tilkynni nýjan þjálfara í næstu viku.

Christophe Galtier, þjálfari Nice, mun taka við liðinu og segja franskir fjölmiðlar það svo gott sem staðfest.

PSG hefur reynt að fá Pochettino til að lækka kröfur sínar en hann á rétt á 15 milljónum evra. Samningur hans við PSG rennur út í júní á næsta ári.

Ástæðan er einfaldlega sú að þrjár milljónir evra af heildarupphæðinni renna óskertar til aðstoðarmanna Pochettino og heimtar hann því að félagið greiði upp allan samninginn.
Athugasemdir
banner
banner