Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
banner
   sun 26. júní 2022 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verður að koma í ljós hvort Jajalo spili fleiri leiki
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Aðalatriðið er að koma sér áfram en þetta var svolítið sérstakur leikur," sagði Arnar Grétarsson þjálfari KA eftir sigur á Fram í Mjólkurbikarnum í dag.


Lestu um leikinn: KA 4 -  1 Fram

„Mér fannst við byrja leikinn ágætlega, komumst yfir, fáum víti sem ég held að hafi verið víti. Svo fáum við dauðafæri fljótlega á eftir, algjör deddari en hann ver að vísu mjög vel."

KA var með 2-0 forystu í hálfleik og manni fleiri en Fram náði að minnka muninn í seinni hálfleik áður en KA náði að klára leikinn.

„Mér fannst við byrja seinni hálfleikinn fyrstu fimm mínúturnar allt í lagi. Framararnir voru annars sprækari, héldu boltanum fínt en svo vorum við hættulegastir okkur sjálfum með feilsendingar, ein slík gerði það verkum að við fengum á okkur víti," sagði Arnar.

Kristian Jajalo spilaði báða leikina í bikarnum til þessa og staðið sig vel. Spurning hvort hann sé farinn að setja alvöru pressu á Stubb?

„Það verður bara að koma í ljós, hann stóð sig mjög vel í dag," sagði Arnar.

Sjá einnig:
Spyr hvort ævintýrinu er að ljúka - „Liðin séu líka að fatta þetta"


Athugasemdir
banner
banner
banner