Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 27. júlí 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Sjáðu gleðina í klefanum hjá Aston Villa - „Sungu Sweet Caroline"
Mynd: Getty Images
Aston Villa náði að bjarga sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni með góðum lokasprett í deildinni. Aston Villa var lengi í fallsæti á tímabilinu en átta stig í síðustu fjórum leikjum tímabilsins tryggðu úrvalsdeildarsætið.

Eftir 1-1 jafntefli gegn West ham í gær endaði Aston Villa með 35 stig, stigi meira en Watford og Bournemouth.

Gleðin var mikil inni í búningsklefa Aston Villa eftir leik en leikmenn og starfsmenn liðsins tóku lagið „Sweet Caroline" saman eins og sjá má hér að neðan.

Pepe Reina er þekktur skemmtikraftur og hann tók að sjálfsögðu líka lagið í klefanum.

Sjá einnig:
Keane um Villa: Ímyndið ykkur ef þeir vinna eitthvað



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner