Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. október 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Sara Björk mætir sínu gamla liði
Sara Björk Gunnarsdóttir spilar við Lyon
Sara Björk Gunnarsdóttir spilar við Lyon
Mynd: Getty Images
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, verður í eldlínunni með Juventus í kvöld er liðið mætir Lyon í Meistaradeild Evrópu.

Landsliðskonan samdi við Juventus í sumar eftir að hafa spilað síðustu ár fyrir Lyon en hún mætir franska liðinu í fyrsta sinn síðan hún yfirgaf félagið.

Leikurinn hefst klukkan 16:45 og fer fram á heimavelli Juventus en þetta er önnur umferð riðlakeppninnar.

Guðrún Arnardóttir og stöllur í sænska meistaraliðinu Rosengård spila þá við Barcelona á sama tíma.

Klukkan 19:00 mætir Bayern liði Benfica en Glódís Perla Viggósdóttir verður væntanlega í byrjunarliði Bayern. Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru einnig á mála hjá Bayern. Cecilía hefur verið á bekknum í nokkrum leikjum Bayern á tímabilinu en Karólína hefur verið frá vegna meiðsla.

Leikir dagsins:
16:45 Juventus W - Lyon
16:45 Rosengard W - Barcelona W
19:00 Arsenal W - Zurich W
19:00 SL Benfica W - Bayern W
Athugasemdir
banner
banner
banner