Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
   lau 28. ágúst 2021 17:57
Brynjar Óli Ágústsson
Jón: Ekki leiðinlegt fyrir hann að kóróna það með sigurmarki
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hrikalega sáttur með sigurinn í erfiðum leik. Við missum mann snemma út af, þannig við þurfum virkilega að hafa fyrir því,'' sagði Jón Sveinsson, þjálfari Fram, eftir spennandi 2-1 sigur gegn Gróttu.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  1 Grótta

„Við höfum gírað okkur ágætlega í þessa leiki. Mér fannst við töluvert betri gegn Þrótt í síðasta leik og klaufalegt að klára hann ekki og svo aftur í dag. Við setjum snemma á þá mark og vorum ekki í miklum vandræðum.''

„Svo þegar við verðum manni færri þurftum við aðeins að breyta og verjast meira. Grótta náði að setja smá pressu á okkur þegar leið á seinni hálfleikinn, en fram að því vorum við ekki í miklum vandræðum.''

Haraldur Einar Ásgrímsson skoraði frábært mark, stöngin inn sem var sigurmark leiksins.

„Halli er búinn að standa sig gífurlega vel í sumar og ekki leiðinlegt fyrir hann að kóróna það með sigurmarki hér í dag, einum færri. Það verður ekkert sætara en það held ég.''

Hægt er að horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner