Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. október 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Zaha slær á létta strengi - „NFL á Wembley"
Matteo Guendouzi tæklar Wilfried Zaha
Matteo Guendouzi tæklar Wilfried Zaha
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha, leikmaður Crystal Palace, ákvað að slá á létta strengi á Twitter eftir 2-2 jafnteflið gegn Arsenal en hann var að sleppa í gegn undir lok leiks áður en Matteo Guendouzi tæklaði hann.

Zaha fékk boltann fyrir utan vítateig Palace og þurfti bara að fara framhjá Guendouzi til að komast í kjörið tækifæri til að hlaupa upp völlinn og skora en franski miðjumaðurinn tók hann niður.

Dómari leiksins gaf Guendouzi aðeins gult spjald fyrir þessa ótrúlegu rugby tæklingu en Zaha gat grínast með atvikið eftir leik.

Hann deildi mynd af honum og Guendouzi á Twitter og skrifaði undir hana „NFL á Wembley".


Athugasemdir
banner