Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. október 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Markvörður skoraði næstum og lagði svo upp í uppbótartíma
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Alexander Meyer, markvörður Regensburg í 2. Bundesliga í Þýskalandi, lét heldur betur ljós sitt skína í uppbótartíma þegar Nurnberg og Regensburg gerðu jafntefli, 1-1, um helgina.

Meyer skokkaði yfir í teig Nurnberg í uppbótartíma þegar Regensburg reyndi að jafna leikinn úr hornspyrnu.

Meyer reyndist gífurlega mikilvægur og lagði hann upp jöfnunarmarkið með góðum skalla. Áður hafði hann átt tilraun í teignum sem upp úr varð önnur hornspyrna.

Meyer skallaði boltann fyrir Jan-Marc Schneider sem skoraði af stuttu færi. Myndband af markinu og tilþrifum Meyer má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner