Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. desember 2019 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Moreno ræðir Enrique: Ég er afar þakklátur
Mynd: Getty Images
Robert Moreno tók við Mónakó um helgina en á fyrsta blaðamannafundinum ræddi hann samstarf sitt með Luis Enrique hjá spænska landsliðinu,

Moreno var síðast þjálfari spænska landsliðsins í fjarveru Enrique en sá síðarnefndi tók sér hlé frá þjálfun eftir fráfall dóttur hans.

Enrique ákvað að snúa aftur og taka við landsliðinu en tók þá ákvörðun að hafa Moreno ekki í þjálfarateyminu.

Moreno sagði að Enrique hefði svikið hann en hann segist hins vegar þakklátur fyrir samstarfið.

„Ég eyddi níu frábærum árum með Luis Enrique. Ég er afar þakklátur og allt það sem gerðist fyrir nokkrum vikum er búið og gert," sagði Moreno.
Athugasemdir
banner
banner
banner