Real Madrid 2 - 0 Getafe
1-0 Dani Carvajal ('20)
2-0 Gareth Bale ('51)
1-0 Dani Carvajal ('20)
2-0 Gareth Bale ('51)
Real Madrid lenti ekki í vandræðum er Getafe kom í heimsókn í fyrstu umferð spænsku deildarinnar.
Dani Carvajal gerði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik með frábærum skalla, þar sem hann vippaði knettinum skemmtilega yfir markvörð Getafe.
Gareth Bale tvöfaldaði forystuna og tryggði þar með sigurinn eftir vel útfærða sókn snemma í síðari hálfleik.
Gestirnir voru ekki ógnandi í leiknum og verðskuldaði Real sigurinn. Sevilla og Barcelona unnu einnig í fyrstu umferð en Atletico Madrid á erfiðan leik gegn Valencia annað kvöld.
Athugasemdir