Mikaela Nótt í Breiðablik (Staðfest)

Mikaela Nótt Pétursdóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Haukum. Hún var á láni hjá Íslandsmeisturum Vals á síðustu leiktíð.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Mikaela Nótt Pétursdóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Haukum. Hún var á láni hjá Íslandsmeisturum Vals á síðustu leiktíð.

„Aðventan er tími gleðifregna og við færum ykkur þær gleðifréttir að Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, hefur framlengt samning sinn út tímabilið 2025!" segir í frétt á ibvsport.is. Eiður er einn allra besti miðvörður Bestu deildarinnar og einn mikilvægasti hlekkurinn í liði ÍBV. Hann var valinn besti leikmaður liðsins á liðnu tímaibli.
Sæunn Björnsdóttir, sem lék með Þrótti á láni frá Haukum síðasta sumar, hefur ákveðið að skipta alfarið í Þrótt. Þetta staðfesti þjálfari liðsins Nik Chamberlain við Fótbolta.net. Hún var samningsbundin Haukum út næsta tímabil en samningur hennar var ógildur eftir fall Hauka í 2. deild.
Það snýst allt um HM þessa dagana. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Skoska félagið Celtic hefur fest kaup á kanadíska landsliðsmanninum Alistair Johnston en hann kemur til félagsins frá Montreal.

Hrvoje Tokic er genginn til liðs við Ægi og leikur með liðinu í 2. deild næsta sumar.

Adam Örn Arnarson hefur gert tveggja ára samning við Fram.

Elfar Freyr Helgason er farinn frá Breiðabliki. Þetta kemur fram í færslu Breiðabliks á Facebook. Fram kemur að Breiðablik og Valur hafi náð samkomulagi um félagaskipti Elfars yfir í Val. Elfar hefur glímt við meiðsli síðustu tvö tímabil, spilaði ekkert tímabilið 2021 en kom við sögu í alls sex leikjum á nýliðnu tímabili.
Hjörvar Sigurgeirsson er genginn í raðir Aftureldingar, skrifaði í dag undir samning sem gildir út tímabilið 2023. Hjörvar, sem er 24 ára bakvörður, kemur til Aftureldingar frá Hetti/Hugin. Hann var í eitt tímabil á Egilsstöðum og vakti athygli með liðinu í 2. deild á liðinni leiktíð. Hann var t.a.m. valinn í lið ársins af Ástríðunni.
Þór hefur fengið markvörðinn Ómar Castaldo Einarsson í sínar raðir, hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í vikunni. Ómar er 21 árs og er uppalinn í KR. Hann hefur verið aðalmarkvörður venslafélagsins KV undanfarin þrjú tímabil og leikið alls 61 deildarleik fyrir KV.
Fram hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök liðsins í Lengjudeildinni á næsta tímabili því Alexa Kirton hefur skrifað undir samning við félagið. Þetta kom fyrst fram í slúðurpakkanum í lok október. „Alexa er 23 ára varnarsinnaður miðjumaður sem átti frábæran feril með New Mexico í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún er leikjahæsti leikmaður skólans frá upphafi," segir í tilkynningu Fram.
Robert Martínez er hættur þjálfun belgíska landsliðsins. Frá þessu greindi hann eftir að ljóst varð að Belgía færi ekki upp úr F-riðli á HM í Katar. Hann var búinn að taka ákvörðun fyrir mótið að það yrði hans síðasta með liðið. Belgía sat eftir með fjögur stig á meðan Marokkó og Króatía halda í sextán liða úrslitin. Niðurstaðan er mikil vonbrigði, Belgía er í 2. sæti heimslista FIFA og var leiðin í útsláttarkeppnina fyrirfram talin frekar greiðfær.
Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni næsta sumar. Í dag var Húsvíkingurinn Rafnar Máni Gunnarsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins. Rafnar er tvítugur, kemur frá uppeldisfélagi sínu Völsungi og skrifar undir samning til ársins 2025.

Emilía Ingvadóttir er alfarið gengin til liðs við Fram frá KR. Hún gerir tveggja ára samning við félagið.

Geir Þorsteinsson hættir sem framkvæmdastjóri ÍA á næstunni en hann hefur starfað fyrir félagið síðan 2020. Geir er fyrrum formaður KSÍ.
Það hafa orðið nokkrar breytingar á leikmannahópi Grindavíkur að undanförnu en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Sex leikmenn hafa yfirgefið félagið á síðustu vikum.
Keflavík hefur samið við tvo erlenda leikmenn sem koma báðar til félagsins frá ÍBV. Leikmennirnir sem um ræðir eru Madison Wolfbauer og Sandra Voitane. Þær fylgja báðar þjálfaranum Jonathan Glenn frá Vestmannaeyjum.
Aron Jóhannsson er genginn í raðir Fram eftir fimm tímabil í Grindavík. Aron skrifar undir tveggja ára samning við Fram. Hann er uppalinn í Haukum og spilaði þar sinn fyrsta mótsleik árið 2010.
Kolo Toure er nýr þjálfari Wigan í ensku B-deildinni en búið er að staðfesta þessi tíðindi.

Þuríður Ásta Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Grindavík frá Haukum en hún gerir tveggja ára samning við félagið.