Brasilía og Argentína munu mætast í undanúrslitum Suður-Ameríku bikarsins, Copa America aðfaranótt miðvikudags. Thiago Silva, varnarmaður Brasilíu, tekst þar á við leikmann sem hann telur þann besta í sögunni.
Auðvitað er hér um að ræða Lionel Messi, leikmann Barcelona og argentíska landsliðsins.
„Að mínu mati er Messi besti leikmaður sögunnar, besti leikmaður sem ég hef séð," sagði Silva á blaðamannafundi.
„Í hvert skipti sem við mætumst, hvort sem það er með landsliði eða í Meistaradeildinni, þá er það mjög erfitt. Sama hversu mikið þú undirbýrð þig þá geturðu aldrei skilið þau gæði sem hann býr yfir og gæfumuninn sem hann getur gert."
Messi hefur hingað til ekki alveg náð að sýna sínar bestu hliðar á mótinu og það verður fróðlegt að sjá hvað hann gerir í stórleiknum gegn Brasilíu.
Athugasemdir