Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 02. júní 2021 21:20
Victor Pálsson
Ancelotti vill nota Bale - „Hann kemur aftur hingað"
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti vill nota Gareth Bale hjá Real Madrid á næsta tímabili en hann greinir sjálfur frá þessu.

Bale var í láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð og var Ancelotti þá þjálfari Everton. Hann var ráðinn aftur til Real í gær.

Bale átti enga framtíð hjá Real undir Zinedine Zidane en það gæti breyst eftir komu Ítalans.

„Gareth hefur ekki spilað svo mikið í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði mörk," sagði Ancelotti.

„Hann var öflugur í síðustu leikjum tímabilsins þegar hann spilaði stöðugt. Hann kemur aftur hingað."

„Ég þekki hann vel. Ef hann er með metnaðinn til að spila þá getur hann átt frábært tímabil, ég efast ekki um það."
Athugasemdir
banner
banner
banner