Atli spilaði 70 A-landsleiki og skoraði 8 mörk, en hann var auk þess fyrirliði landsliðsins. Hann gerði KR að Íslandsmeisturum sem þjálari árið 1999 og tók í kjölfarið við íslenska landsliðinu.
Margir hafa skrifað falleg minningarorð um Atla á Twitter í kvöld eins og sjá má hér að neðan.
Atli Eðvaldson er sá sem hefur haft stærstu áhrifin á minn ferill. Viðhorf hans tók ég til mín, ég er sá fyrirliði sem hann skapaði í mér og vona að hann hafi verið stoltur af mér. Ég á honum allt að þakka. Hann er á efsta stalli hjá mér. Samúð mín til fjölskyldu og vina🙏🏻❤️
— gulligull1 (@GGunnleifsson) September 2, 2019
Atli Eðvalds bjó í húsinu við túnið þar sem við spiluðum fótbolta í hverfinu. Var ekki leiðinlegt að hafa sjálfan landsliðsþjálfarann í eldhúsglugganum að horfa á mann. Svo fékk maður auðvitað skammir þegar maður labbaði framhjá með videospólu en engan bolta. Hvíl í friði.
— Orri Freyr Rúnarsson (@OrriFreyr) September 2, 2019
Goðsögn fallin frá, Hvíl í friði Atli. pic.twitter.com/gOBbPiUHHX
— Ótthar Edvardsson (@OttharE) September 2, 2019
Blessuð sé minning þessa sómamanns og góða drengs. Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina Atla. Andlát: Atli Eðvaldsson - https://t.co/vuUq5axmIW https://t.co/kh778FtuRh via @mblfrettir
— Ívar Benediktsson (@ivarben) September 2, 2019
Atli Eðvaldsson mun lifa í minningunni. Einstakur karakter og keppnismaður. Hafðu þökk fyrir.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) September 2, 2019
Atli ❤
— Hans Steinar (@hanssteinar) September 2, 2019
Fyrir þá sem ólust upp á 9. áratugnum var Atli Eðvaldsson maðurinn. Fyrirliðinn. Svo kynntist ég honum í starfi mínu og meiri eðalmann er erfitt að finna. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Atla.
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) September 2, 2019
Hrikalega sorglegt. Algjör goðsögn fallin frá. Atli er einn af okkar bestu frá upphafi. Líka einkar indæll og viðkunnalegur náungi sem gaman var að tala við. Samúðarkveðjur til vina og fjölskyldu. https://t.co/Ny01zPOndz
— Henry Birgir (@henrybirgir) September 2, 2019
Hvíldu í friði Atli 🙏
— Úlfur Arnar Jökulsson (@UlfurArnar) September 2, 2019
Takk fyrir mig Atli. Mikið sem þú gerir fyrir mig. Hvíldu í friði ❤ https://t.co/IGzWltOHD6
— Marteinn Örn (@kjeppzari) September 2, 2019
Fyrir krakka sem ólst upp á níunda áratugnum, þá var Atli Eðvaldsson ekkert annað en ofurhetja. Frábær fótboltamaður og frábær fyrirmynd. Samúðarkveðjur á alla sem um sárt eiga að binda vegna fráfalls Atla.
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) September 2, 2019
Þær sorgarfréttir bárust í dag að Atli Eðvaldsson hefði látist eftir hetjulega baráttu við krabbamein. KR vottar fjölskyldu og ástvinum Atla samúð sína. Hans nafni verður haldið á lofti innan KR. pic.twitter.com/sRlXf75K69
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) September 2, 2019
Atli Eðvaldsson átti stóran þátt í því að @IBVsport varð Íslandsmeistari 1997 og 1998 og eitt af bestu liðum landsins árin þar á eftir. Hann lagði grunninn sem þjálfari liðsins 95-96, tók liðið úr eilífri fallbaráttu og út í Evrópu. Blessuð sé minning hans #fotbolti
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) September 2, 2019
Sendi aðstandendum Atla Eðvaldssonar innilegar samúðarkveðjur. Tók annað stóra viðtalið mitt sem blaðamaður við hann snemma árs 2008. Vorum fínustu félagar eftir það. Frábær fótboltamaður og sömuleiðis frábær persóna. Elskaði að spila og tala um fótbolta. Hvíl í friði, Atli.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 2, 2019
Samhryggist öllum aðstandendum og vinum. Ógleymanlegur íþróttamaður fallinn frá svo alltof snemma. Sönn goðsögn og sigurvegari. Takk fyrir mig Atli! https://t.co/VU0emMrfdu
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) September 2, 2019
Þessi hefur gert svo marg fyrir fallega leikinn bæði innan og utan vallar. Takk fyrir þitt framlag Atli Eðvaldsson. Hvíl í friði. pic.twitter.com/TXpY7L9UeI
— Rikki G (@RikkiGje) September 2, 2019
Atli Edvaldsson (1957-2019) blessuð sé minning hans! RIP pic.twitter.com/Bk1OOirXnD
— Total Football (@totalfl) September 2, 2019
Atli var einn af þeim leikmönnum sem maður leit upp til sem gutti. Var “starstruck” er ég mætti honum seinna meir á vellinum. Atli var frábær leikmaður og þjálfari en umfram allt algjör heiðursmaður sem verður sárt saknað. Vil senda fjölskyldu og vinum Atla dýpstu samúðarkveðjur
— saevar petursson (@saevarp) September 2, 2019
Fyrir krakka sem ólst upp á níunda áratugnum, þá var Atli Eðvaldsson ekkert annað en ofurhetja. Frábær fótboltamaður og frábær fyrirmynd. Samúðarkveðjur á alla sem um sárt eiga að binda vegna fráfalls Atla.
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) September 2, 2019
Atli sá mann (mig) sem var 1.90 og kunni ekki að skalla. Hann var fljótur að breyta því. Fékk svo að kynnast honum betur í gegnum mitt vinafólk sem á hug minn allan á þessum erfiðu tímum! Sif, Emil, Egill og Sara fótboltasamfélagið hryggir með ykkur! https://t.co/nJVuFVjYSM
— Erlingur Jack (@ElliJack) September 2, 2019
Man svo vel mörkin fimm með Düsseldorf gegn Frankfurt. Ég eignaðist rauðu treyju Fortuna í kjölfarið.
— Leifur Gardarsson (@LGardarsson) September 2, 2019
Leiðtoginn, fyrirliðinn, hugsuðurinn.
Alltaf til í spjall og pælingar, alltaf jákvæður. Blessuð sé minning Atla Eðvaldssonar. Hlýjar kveðjur til fólksins hans.#Edvaldsson #RIP pic.twitter.com/yXhUya93jk
Einn af þeim skemmtilegri sem maður ræddi við um fótbolta, hafði alltaf skemmtilegar sögur að segja og hafði tíma fyrir alla. Hvíl í friði Atli https://t.co/P7BTyxZtLp
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) September 2, 2019
Sendi vinum og fjölskyldu Atla Eðvalds samúðarkveðjur. Einn okkar allra besti í sögunni #fotboltinet
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) September 2, 2019
Fyrrum leikmaður og þjálfari HK Atli Eðvaldsson lést í dag eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Atli var mikill heiðursmaður sem hafði mikil áhrif á íslenska knattspyrnu, bæði sem leikmaður og þjálfari. HK sendir fjölskyldu og vinum Atla dýpstu samúðarkveðjur. pic.twitter.com/MOL4HjEWmb
— HK (@HK_Kopavogur) September 2, 2019
Atli Eðvaldsson, fyrrum þjálfari Þróttar, lést í dag eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Atli var sannkallaður heiðursmaður sem hafði mikil áhrif á íslenska knattspyrnu, bæði sem leikmaður og þjálfari. Þróttur vottar fjölskyldu og vinum Atla innilegar samúðarkveðjur. ❤️ pic.twitter.com/HPQ3B8r6ET
— Þróttur (@throtturrvk) September 2, 2019
Minning um eina mestu goðsögn íslenskrar knattspyrnusögu, og hlýja og góða manneskju, lifir áfram. Samúðarkveðjur til allra aðstandenda. Takk fyrir okkur Atli. https://t.co/i7Hvn6BeYR
— Alexander Einarsson (@alexander_freyr) September 2, 2019