Arsenal tók á móti Molde í Evrópudeildinni í kvöld og lenti undir í fyrri hálfleik en náði svo að jafna fyrir leikhlé.
Í síðari hálfleik fékk Sead Kolasinac dauðafæri í stöðunni 1-1 en einhvern veginn tókst honum að senda boltann yfir galopið markið.
Kolasinac, sem er örvfættur, fékk boltann á hægri. Hann hafði góðan tíma til að átta sig á aðstæðum en tókst þrátt fyrir það að klúðra af nokkurra metra færi.
Arsenal tók við sér eftir klúðrið og stóð uppi sem sigurvegari, 4-1.
Atvikið má sjá með að smella hér.
Athugasemdir