Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   fös 06. nóvember 2020 18:30
Victor Pálsson
Þarf bara að hugsa um að gefa á Lionel Messi
Mynd: Getty Images
Dani Alves, goðsögn Barcelona, hefur gefið bakverðinum Sergino Dest ráð en sá síðarnefndi leikur með spænska félaginu í dag.

Alves var lengi hægri bakvörður númer eitt á Nou Camp en hefur yfirgefið félagið og leikur í dag með Sao Paulo í heimalandinu.

Dest þykir vera gríðarlega efnilegur bakvörður en hann kom til Barcelona frá Ajax og er landsliðsmaður Bandaríkjanna.

Það er þó aðeins eitt sem þessi ungi kappi þarf að hugsa um og það er að gefa boltann á Lionel Messi, samherja sinn, sem er af mörgum talinn besti leikmaður heims.

„Ef ég þarf að gefa Dest ráð þá er það mjög einfalt: gefðu boltann á Lionel Messi," sagði Alves við útvarpsstöðina RAC 1.

„Leikmaðurinn er með mikil gæði og getur náð árangri hjá Barcelona en ég vil ekki bera hann saman við neinn. Það gerðist með mig og Cafu... Það er ekkert vit í því."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner