Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 10. maí 2022 19:22
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Svakaleg byrjun á Villa Park - „Þetta er augljós rangstaða"
Joel Matip og Virgil van Dijk sameinuðu krafta sína
Joel Matip og Virgil van Dijk sameinuðu krafta sína
Mynd: EPA
Leikur Aston Villa og Liverpool byrjaði með látum á Villa Park en tvö mörk voru skoruð á fyrstu sex mínútum leiksins. Mark Villa þótti afar umdeilt.

Douglas Luiz kom Villa yfir á 3. mínútu. Það kom fyrirgjöf frá vinstri og þurfti Alisson að verja fínan skalla frá Luiz áður en boltinn hrökk aftur til hans og þaðan í netið. Enski framherjinn Ollie Watkins virtist rangstæður í aðdraganda marksins áður en Matty Cash kom boltanum fyrir á Luiz.

Liverpool tók sér ekki langan tíma í að svara markinu. Trent Alexander-Arnold átti aukaspyrnu inn í teiginn og eftir smá darraðadans í teignum lyfti Virgil van Dijk boltanum yfir Emiliano Martinez og til Joel Matip sem jafnaði leikinn.

Hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Luiz

Sjáðu jöfnunarmark Matip






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner