Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   lau 14. janúar 2023 15:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Manchester liðana: Rashford bestur - Grealish og Garnacho sterkir
Mynd: EPA

Sky Sports hefur tekið saman einkunnir Manchester liðanna eftir 2-1 sigur United á City á Old Trafford í hádeginu í dag.


Bruno Fernandes og Marcus Rashford skoruðu mörk United en Jack Grealish skoraði mark City.

Marcus Rashford var valinn maður leiksins með átta í einkunn en Bruno fékk einnig átta. Þá kom Alejandro Garnacho sterkur inn af bekknum og lagði upp sigurmarkið en hann fær sjö.

Grealish skoraði stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður en han fær sjö ásamt De Bruyne. Lítið kom út úr Erling Haaland og Phil Foden en þeir fá sitthvora fimmuna.

Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (7), Varane (7), Shaw (7), Malacia (7), Casemiro (7), Fred (7), Eriksen (6), Fernandes (8), Martial (7), Rashford (8).

Varamenn: Antony (6), Garnacho (7),

Man City: Ederson (5), Walker (6), Akanji (6), Ake (6), Cancelo (6), Rodri (6), De Bruyne (7), Bernardo (6), Mahrez (6), Haaland (5), Foden (5)

Varamaður: Grealish (7)


Athugasemdir
banner
banner