Glódís Perla Viggósdóttir átti stórfenglegan leik þegar Ísland hóf leik á Evrópumótinu um síðustu helgi.
Glódís var valin maður leiksins í einkunnagjöf Fótbolta.net í 1-1 jafntefli liðsins gegn Belgíu síðastliðinn sunnudag.
Glódís var valin maður leiksins í einkunnagjöf Fótbolta.net í 1-1 jafntefli liðsins gegn Belgíu síðastliðinn sunnudag.
„Hvað er hægt að segja? Þær eru óaðfinnanlegar eiginlega," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson þegar rætt var um miðvarðarpar Íslands í Innkastinu eftir leik. Guðrún Arnardóttir lék með Glódísi í hjarta varnarinnar og var einnig mjög góð í leiknum.
„Ég ætla að stela líkingu kollega okkar, Óskars Ófeigs, um Glódísi. Hann sagði bara að þetta væri eins og að horfa á (Virgil) Van Dijk," sagði Sæbjörn Steinke.
„Hún stígur upp úr vörninni og vinnur öll einvígi. Maður tekur eftir þessu. Hún les í öll návígí, hún stýrir línunni og hún er með tilfinninguna hárrétta fyrir þessu."
„Þegar maður er að horfa á hana spila fótbolta, þá er maður bara: 'Vá, hvað hún er ótrúlega góð'," sagði Guðmundur.
Sjá einnig:
„Ég held að hún sé með betri miðvörðum í heimi"
Athugasemdir