Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 14. nóvember 2021 11:20
Aksentije Milisic
Fá eina milljón evra í vasann vinni þeir Portúgal í kvöld
Skorar Mitrovic í kvöld?
Skorar Mitrovic í kvöld?
Mynd: Getty Images
Portúgal og Serbía mætast í hreinum úrslitaleik um hvort liðið fer beint á HM í Katar á næsta ári. Leikurinn fer fram í Lissabon í kvöld og hefst klukkan 19.45.

Heimildir segja frá því að leikmenn Serbíu fá allir eina milljón evra í vasann takist þeim að sigra í Portúgal í kvöld og fara beint á HM. Serbía þarf á þremur stigum að halda en Portúgal dugir eitt stig.

Leikmönnum Serbíu var tilkynnt þetta í flugi á leið til Portúgals, að ef þeir fara og ná í óvænt úrslit þá fái leikmenn þennann myndarlega bónus.

Fyrri leikur liðanna endaði 2-2 í Belgrad en það varð allt brjálað undir lok leiks en þá virtist Cristiano Ronaldo skora löglegt mark á lokamínútunni.

Marklínutæknin var ekki á staðnum í leiknum og því misstu dómarar leiksins af því þegar boltinn fór yfir línuna. Ronaldo brjálaðist í kjölfarið og henti fyrirliðabandinu af sér og strunsaði inn í klefann.
Athugasemdir
banner
banner
banner