Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. júlí 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Bakvörður Sassuolo fékk höfuðhögg - Ekki með í kvöld
Rogerio
Rogerio
Mynd: Getty Images
Brasilíski bakvörðurinn Rogerio mun ekki spila með Sassuolo gegn Juventus í kvöld er liðin eigast við í 33. umferð ítölsku deildarinnar.

Rogerio er 22 ára gamall en hann kom til Ítalíu árið 2016 frá brasilíska liðinu Inter.

Hann gekk þá til liðs við Sassuolo en Juventus festi kaup á honum hálfu ári síðar. Juventus lánaði hann í tvö ár til Sassuolo áður en félagið keypti hann svo aftur á síðasta ári.

Rogerio verður ekki með gegn sínum gömlu félögum í kvöld en hann fékk slæmt höfuðhögg á æfingu Sassuolo í gær.

Talið er að hann verði frá næstu vikur en hann hefur komið við sögu í fimm leikjum af þeim sjö sem Sassuolo hefur spilað í deildinni frá því hún fór aftur af í júní.
Athugasemdir
banner