Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 19. júlí 2018 21:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Liverpool vann Blackburn - Roma búið að kveðja Alisson
Sturridge skoraði í dag.
Sturridge skoraði í dag.
Mynd: Getty Images
Blackburn 0-2 Liverpool
0-1 Lazar Markovic ('63)
0-2 Daniel Sturridge ('73)

Liverpool heldur undirbúningstímabili sínu áfram og í dag mætti liðið Blackburn í æfingaleik. Fyrri hálfleikurinn var markalaus þar sem Liverpool spilaði ekkert sérstaklega, Milner brenndi af víti og Lallana fékk þá nokkur góð færi.

Liverpool gerði tíu breytingar á liðinu í síðari hálfleik. Naby Keita var á meðal manna sem komu inn og stóð upp úr í dag. Sturridge fékk nokkur góð færi en það var hinsvegar Markovic sem skoraði fyrsta markið.

Sturridge tvöfaldaði forskotið skömmu síðar. Keita vann boltann á miðjunni og fann Sturridge sem átti frábæra móttöku og kláraði snyrtilega framhjá markverði Blackburn. Þægilegur sigur Liverpool staðreynd sem hélt einnig hreinu í dag.

Á meðan leiknum stóð var Alisson á Anfield í læknisskoðun og Roma hefur nú formlega kvatt markmanninn á Twitter. Liverpool á þó eftir að staðfesta félagsskiptin.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner