Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 19. desember 2018 14:17
Elvar Geir Magnússon
Mourinho mættur til London - „Megið ganga með mér"
Fréttamaður Sky fékk ekki mikið upp úr Mourinho.
Fréttamaður Sky fékk ekki mikið upp úr Mourinho.
Mynd: Sky Sports
Jose Mourinho er kominn til London þar sem fjölskylda hans hefur búið á meðan hann starfaði hjá Manchester United. Mourinho bjó sjálfur á hóteli allan tímann sem hann var hjá United.

Fréttamenn og ljósmyndarar eltu Mourinho þegar hann gekk um götur Lundúna í dag. Portúgalski stjórinn var rekinn frá United í gær en Ole Gunnar Solskjær mun stýra United út tímabilið.

Mourinho var beðinn um sína skoðun.

„Þið þekkið mig. Ég hef ekkert að segja. Ef þið viljið ganga með mér þá er það alveg velkomið, en ég hef ekkert að segja," sagði Mourinho.

Mourinho var stjóri United í tvö og hálft ár en síðasti leikur hans við stjórnvölinn hjá félaginu var 3-1 tapið gegn Liverpool um síðustu helgi. United er ellefu stigum frá topp fjórum.


Athugasemdir
banner
banner