Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 24. júní 2022 22:27
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Völsungur jafnaði undir lokin
Völsungur er í 4. sæti deildarinnar
Völsungur er í 4. sæti deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höttur/Huginn 1 - 1 Völsungur
1-0 Björgvin Stefán Pétursson ('14 )
1-1 Mikel Abando Arana ('90 , Mark úr víti)

Lið Hattar/Hugins er eflaust afar svekkt með að hafa gert 1-1 jafntefli við Völsung í 2. deild karla á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum í kvöld.

Björgvin Stefán Pétursson kom heimamönnum yfir á 14. mínútu leiksins og tókst liðinu að halda út allan fyrri hálfleikinn.

Það var útlit fyrir að Höttur/Huginn myndi fara heim með öll þrjú stigin en Húsvíkingar héldu ekki. Undir lok leiksins fengu gestirnir vítaspyrnu og skoraði Mikel Abando Arana úr vítinu.

Leiknum lauk því, 1-1. Svekkjandi úrslit fyrir Hött/Hugin sem er í 9. sæti með 6 stig en Völsungur í 4. sæti með 14 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner