Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 27. júní 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sex smit hjá Orenburg - Krasnodar fær sigurinn
Jón Guðni hefur fengið lítinn spiltíma á tímabilinu.
Jón Guðni hefur fengið lítinn spiltíma á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Rússland er í harðri baráttu við Covid-19 og hefur veiran haft áhrif á fjóra leiki eftir að rússneska deildin fór aftur af stað.

Jón Guðni Fjóluson og félagar í Krasnodar eiga útileik við Orenburg í dag en ljóst er að Orenburg getur ekki teflt fram liði þar sem leikmannahópurinn er í sóttkví. Það eru sex smit í hópnum.

Engin dagsetning hentar til að endurspila leikinn og því fær Krasnodar dæmdan 0-3 sigur sem kemur sér afar vel í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Rússar hafa átt í vandræðum með að leysa úr vandræðunum sem Covid hefur skapað í deildinni. Þegar FC Rostov var með sex smit innan hópsins neituðu andstæðingarnir í PFC Sochi að færa leikinn. Rostov tefldi því fram unglingaliðinu sínu og tapaði 10-1.

Svipað átti sér stað þegar Dynamo Moskva átti að spila við Krasnodar en þrír leikmenn Dynamo voru smitaðir. Andstæðingarnir í Krasnodar brugðust íþróttamannslega við og samþykktu að færa leikinn til 19. júlí.

Krasnodar er í þriðja sæti rússnesku deildarinnar, þremur stigum eftir Lokomotiv Moskvu í öðru sæti. Annað sætið er eftirsótt þar sem það gefur þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Zenit er með níu stiga forystu á toppi deildarinnar.
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 25 15 5 5 44 22 +22 50
2 FK Krasnodar 25 14 7 4 41 25 +16 49
3 Dinamo 25 12 8 5 42 33 +9 44
4 Lokomotiv 25 10 11 4 42 34 +8 41
5 Kr. Sovetov 25 11 6 8 43 35 +8 39
6 Spartak 25 11 6 8 34 29 +5 39
7 CSKA 25 9 11 5 44 33 +11 38
8 Rostov 25 10 7 8 37 38 -1 37
9 Rubin 25 10 6 9 23 30 -7 36
10 Nizhnyi Novgorod 25 8 4 13 24 33 -9 28
11 Orenburg 25 6 8 11 28 33 -5 26
12 Fakel 25 6 8 11 19 28 -9 26
13 Akhmat Groznyi 25 7 5 13 24 37 -13 26
14 Ural 25 6 6 13 24 39 -15 24
15 Baltica 25 6 5 14 25 31 -6 23
16 Sochi 25 4 7 14 26 40 -14 19
Athugasemdir
banner
banner
banner