Björn Daníel Sverrisson, Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Viktor Örn Guðmundsson
Undirritaðir voru beðnir um að grýta í einn stuttan pistil um Portúgalsferð FH-inga. Þetta var geggjuð ferð, gjörsamlega geggjuð. Lagt var af stað mánudagsmorgun, allir í drullunettum gír. Eftir kómiskt ferðalag vorum við komnir um 2 leytið og tókum við létta æfingu kl 4, sumir æfðu aðrir ekki. Það vakti mikla lukku meðal leikmanna að allir áttu að taka með sér rúlludjöful og rúlla sér fyrir æfingar, skemmtileg tilbreyting en yfirhöfuð bara drullunett. En það sem vakti mestu lukku leikmanna, sérsaklega Guðmanns og Alberts var það sem blasti við okkur við komu á Kaplakrikann á mánudagsmorguninn, heil rúta af þokkadísum…nammi namm.
Meira »