Ég hef verið Arsenal maður frá því að frændi minn gaf mér Arsenal handklæði 1982 en þá var ég sjö ára gamall. Allar götur síðan hef ég fylgst vel með með liðinu vaxa og dafna. Ég veit t.d eins og flestir Arsenalmenn, nákvæmlega hvað ég var að gera 26.maí 1989 þegar Michael Thomas tryggði Arsenal meistaratitlinn með marki á lokamínútunni á móti Liverpool á Anfield.
Meira »
Árangur í lífinu getur verið margvíslegur. Þú getur náð góðum árangri í skóla, verið í góðri vinnu og þér almennt vegnað vel.
Meira »
Ég heiti Óli Stefán og er alkahólisti. Þessa setningu varð ég að segja upphátt í fullum sal af ókunnugu fólki þegar ég ákvað loks að taka á vandamálinu, þá 34 ára gamall. Ég hafði í raun vitað lengi að áfengisdrykkja var vandamál hjá mér en ekki haft kjark í að gera neitt í því fyrr en þarna.
Meira »
Það er gott að búa í Reykjavík söng Haukur Morthens eitt sinn. Það má vel vera að það hafi verið rétt hjá honum þó svo að ég sé ekki endilega sammála honum. Ég bý núna og hef búið síðustu tæp tvö ár í Höfn á Hornafirði. Hvar er Hornafjörður spyrja sjálfsagt ansi margir sig en Hornafjörður liggur á suðausturhorni Íslands. Þangað eru 442 km frá Reykjavík og á góðum degi ef þið keyrið á 90 km hraða eruð þið um 5 tíma að keyra hingað með einu stoppi.
Meira »
Þegar að ég var að stjórna 2. flokki Sindra í leik á móti Leikni seinnipart síðasta sumars gerðist nokkuð sem hreinlega sló mig og fékk mig til að hugsa um hvað fótbolti hreinlega snérist um í dag.
Meira »