KDA KDA
 
Ívar Björgvinsson
Ívar Björgvinsson
lau 05.sep 2026 10:20
Öll spjót beinast að Mike Dean - Umdeildustu atvikin tekin saman Fyrrum knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga eftir hluti sem hann lét út úr sér falla í hlaðvarpi sem enginn annar en Jamie Vardy stjórnar. Þar fór hann um víðan völl en það sem vakti helst athygli er það hvernig hann lýsti því að hann, ásamt öðrum ónafngreindum dómurum, léku sér að alls konar þrautum á meðan þeir dæmdu leiki í ensku úrvalsdeildinni. Hann tók fram að hann hafi viljandi reynt að standa eins lengi inni í miðjuhringnum og hann kæmist upp með og einnig reynt að komast sem lengst af án þess að flauta í flautu sína.

Þetta dreifðist skiljanlega eins og eldur um sinu enda er þetta verulega ófagmannlegt en margir hafa nú spurt sig hvaða aðra, og jafnvel töluvert alvarlegri, hluti lék hann sér einnig að á hans 22 ára ferli sem dómari í ensku úrvalsdeildinni.

Mike Dean er sá dómari sem hefur dæmt flesta leiki í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en margir muna eftir því hvernig hann var á fótboltavellinum, þar sem hann var litríkur karakter sem sýndi gjarnan mikla tilburði í dómum sínum, ásamt því að taka reglulega upp á því að sprella í leikmönnunum. Því hefur Fótbolti.net tekið saman umdeildustu dóma eða atvik sem Mike Dean kom að, en hver og einn verður að dæma um hvort um er að ræða rétta ákvörðun, mistök eða eitthvað allt annað. Meira »
fös 04.sep 2026 14:57
Tíu ógleymanlegustu fótboltalið 21. aldarinnar Það er alltaf gaman að rifja upp fótboltasöguna en í dag ætlum við að rifja upp ógleymanlegustu fótboltalið 21. aldarinnar, sum þeirra náðu ótrúlegum árangri sem erfitt verður að toppa, önnur komu verulega á óvart og fóru langt umfram þær væntingar sem gerðar voru til þeirra, og sum unnu sig inn í hug og hjörtu fótboltaheimsins.

Bæði landslið og félagslið koma fyrir á listanum en það var um mikið að velja úr en niðurstaðan er klár og eru liðin afar ólík og náðu mismunandi árangri á ólíkum sviðum. Samantektin gefur okkur því gott sambland af stórkostlegum og sigursælum liðum, einnig af óvæntum hetjusögum og liðum sem allir lærðu að elska á einn eða annan hátt. Meira »
lau 29.ágú 2026 16:10
Eftirminnilegustu leikir 21. aldarinnar - Seinni hluti Þetta er seinni hluti samantektar yfir eftirminnilegustu knattspyrnuleiki 21. aldarinnar, en í fyrri hluta var farið yfir sæti 10 og niður í 6. Hér að neðan má 5. sæti og niður í það fyrsta, en við gerð þessa lista var tekið inn í myndina skemmtanagildi og stærðargráða leikja, sem og þau eftirminnilegu atvik sem leikirnir kunnu að hafa boðið upp á. Ef lesendur voru ekki búnir að skoða fyrri hluta er mælt með að gera það fyrst áður en lesið er lengra niður.

Meira »
fim 27.ágú 2026 11:15
Eftirminnilegustu leikir 21. aldarinnar - Fyrri hluti Allir fótboltaáhugamenn elska stórleiki sem standa undir væntingum, eða leiki sem óvænt verða sögufrægir af einhverjum ástæðum. Hér ætlum við að skoða tíu eftirminnilegustu knattspyrnuleiki 21. aldarinnar og verður það gert í tveimur hlutum. Í fyrri hluta skoðum við þá leiki sem höfnuðu í 10. til 6. sæti en í síðari hluta verða efstu fimm sætin tilkynnt. Þessi listi má teljast vera umdeildur en erfitt er að koma fyrir öllum þeim leikjum sem gera tilkall til þess að vera á meðal tíu eftirminnilegustu leikja 21. aldarinnar. Við gerð listans var tekið var inn í myndina skemmtanagildi og stærðargráða leikjanna, sem og eftirminnileg atvik sem kunnu að hafa átt sér stað í leikjunum. Meira »
sun 26.júl 2026 18:21
Byrjunarlið Fram og FH: Jói neyðist til þess að gera breytingu

Fram tekur á móti FH á Lambhagavellinum í 16. umferð í Bestu deildar karla. Leikurinn fer fram kl. 19:15 en byrjunarlið liðanna tveggja eru komin inn og má sjá þau hér að neðan.

Meira »