Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   mán 09. júní 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Myndaveisla: Liverpool skólinn í fullum gangi
Mynd: Liverpoolskóli
Knattspyrnuskóli Liverpool á Íslandi hófst í Mosfellsbæ í fyrradag en um er að ræða skóla fyrir krakka í 3-7. flokki.

Skólanum í Mosfellsbæ lýkur í dag en á morgun hefst námskeið á Akureyri sem stendur fram á fimmtudag.

Liverpoolskólinn er samstarfsverkefni Knattspyrnudeildar Aftureldingar og Liverpool International Football Academy í samstarfi við Þór á Akureyri. Um 600 iðkendur hafa tekið þátt í Liverpoolskólanum sl. þrjú ár og lært af frábærum þjálfurum sem vinna eftir hugtakinu „The Liverpool Way“ þar sem aðalmarkmiðið er að kenna og hafa æfingarnar skemmtilegar.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr skólanum í Mosfellsbæ um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner