Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   mán 29. apríl 2024 19:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Teitur skoraði gegn Sverri Inga - Kolbeinn lagði upp í sterkum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborg sem lagði Sverri Inga Ingason og félaga í Midtjylland af velli í dönsku deildinni í kvöld.


Leiknum lauk með 3-0 sigri Silkeborg en öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Stefán Teitur innsiglaði sigurinn með marki undir lok fyrri hálfleiksins.

Silkeborg er í 6. sæti með 32 stig en Midtjylland er í 3. sæti með 52 stig, jafn mörg stig og FC Kaupmannahöfn sem er í öðru sæti. Bröndby er á toppnum með 56 stig þegar fimm umferðir eru eftir.

Kolbeinn Þórðarson lagði upp eitt mark í 3-0 sigri Gautaborgar gegn Brommapokjarna í sænsku deildinni. Hann var síðan tekinn af velli undir lok leiksins.

Andri Fannar Baldursson lék allan leikinn í 2-0 sigri Elfsborg gegn Sirius. Eggert Aron Guðmundsson er leikmaður Elfsborg en hann er fjarverandi vegna meiðsla. Gautaborg og Elfsborg eru bæði með sjö stig eftir sex umferðir.


Athugasemdir
banner
banner