Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. ágúst 2016 11:40
Elvar Geir Magnússon
Clattenburg lætur húðflúra á sig bikara
Clattenburg er að gera gott mót,
Clattenburg er að gera gott mót,
Mynd: Instagram
Englendingurinn Mark Clattenburg er einn allra besti dómari heims en hann hefur átt ákaflega farsælt ár í starfi sínu.

Á þessu ári hefur hann verið dómari í úrslitaleik FA-bikarsins, úrslitaleik Meistaradeildarinnar og úrslitaleik Evrópukeppni landsliða.

Clattenburg lifir stjörnulífi sem dómari og hann skellti sér á húðflúrstofu á Spáni og lét tattúvera á sig tvo bikara, Meistaradeildarbikarinn og EM bikarinn.

Eftir tvö ár vonast hann til að snúa aftur á sömu stofu og sér sjálfan HM bikarinn.

Sumarfríi Clattenburg er að ljúka en keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst eftir eina og hálfa viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner